Árgangur 1977

siglóvillingar

10.01.2007 22:21:03 / Larey

Komin pása...

Siglóvillingar eru í dvala, eða allavega ég :$ en þeir sem nú þegar hafa fengið notendanafn og lykilorð geta auðvitað tjáð sig hér að vild


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 22:52:24 / Larey

Gleðileg Jól öll sömul

Ég óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og farsældar á nýju ári. Næsta ár er nú stórmerkilegt fyrir árgang 1977

Árið sem við verðum öll ÞRÍTUG.

Kata er fyrst ;)

Kveðja frá Lárey og fjölskyldu


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 10:14:34 / Larey

Gaman saman

Við hittumst 6 úr árgangum í gær ásamt manninum hennar Gullu og fengum okkur að borða á Caruso. Það var mikið spjallað og að mínu mati var rosalega gaman.

Okkur finnst alltof langt að bíða í 5 ár með annað árgangsmót þannig að það verður eitthvað fyrr. Gulla, Jónsi og Anna Louise mynda nýja nefnd þannig að við bíðum bara spennt eftir að heyra í þeim :)

Ég tók nokkrar myndir og það er linkur á þær hér til vinstri


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 22:21:09 / una

Út að borða - á laugardaginn

Jæja, þá er búið að bóka borð á Caruso á laugardaginn fyrir þá sem eru búnir að skrá sig.

Ef það eru einhverjir sem vilja koma með en eru ekki búnir að skrá sig, þá er hægt að senda Lárey mail (larey@simnet.is)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 19:10:00 / Gugga O

Julefrokost i Kongens København!!!

Kæri árgangur ´77!!!

Hvernig væri ad leggja land undir fót og hitta bekkjarfélaga ykkar(Guggurnar og Thori) sem búsett eru í Kaupmannahøfn?

Planid er ad hittast 8 eda 9 des og fara saman út ad borda ekta danskan jólamat á einum af tessum gódu veitingastødum hér í borg....og jafnvel fá sér eina salíbunu i Tivoli!!!

Endilega látid tetta tækifæri ekki fram hjá ykkur fara og drifid ykkur ad bóka flug:) Var ad kanna flug med Icelandair og tad eru enn til midar á 18.500 isl kr!!!!

kærlig hilsen fra kongens København Gugga O, Gugga A og Thórir B. endilega láta fréttina berast!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 16:24:49 / Larey

4. Nóvember

16 kusu og meirihlutinn valdi 4. nóvember, þannig að þá er það ákveðið að þann 4. nóvember förum við saman út að borða.

Nú þarf bara að senda mér mail (larey@simnet.is ) og tilkynna þátttöku og hvort maki komi með. Sem allra fyrst...

Ef það eru einhverjar uppástungur um veitingastað þá má endilega setja það í kommentakerfið en annars var ég að hugsa um Hornið eða Ítalíu...


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 17:48:18 / Larey

Út að borða

Eigum við að hittast í Reykjavík og fara saman út að borða?

Á bekkjarmótinu í sumar voru einhverjir að tala um að það gæti orðið mjög gaman að hittast og borða saman. Ég ætla því að kanna áhugann og endilega veljið helgi hér til hliðar (í skoðanakönnuninni) og sendið mér svo email (larey@simnet.is) eða sms (8626199)hvort þið komist og hvort þið takið maka með.

Ég læt könnunina standa í viku og læt svo vita hvaða helgi hefur orðið fyrir valinu... En endilega látið mig vita hvort áhugi sé fyrir hendi eður ei


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 15:30:11 / Larey

Fallegi fjörðurinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 22:30:49 / Larey

Jamm og jæja

Þá er komið haust og allir eða flestir allavega komnir í sinn vanalega gír... Sumarið var.. uuuu... blautt.... eða allavega fyrir þá sem héldu sig á Íslandinu góða. Ég hins vegar skellti mér til Spánar og varð það til þess að bjarga geðheilsu minni. Annars er bara fínt að frétta :D 

Anna Louise er sú eina sem hefur boðið sig fram í nefnd fyrir næsta árgangsmót og ég er að hugsa um að hanga þá bara áfram algjörlega sjálfskipuð í nefndinni með henni. Aðrir sem vilja vera með endilega hafið samband við mig.

Næsta árgangsmót er væntanlega 2011, á 20 ára fermingarafmæli okkar *úff, svitn*. En mér heyrðist á fólkinu að það væri áhugi fyrir því að hittast í Reykjavík og fara saman út að borða og eitthvað þannig...

Þessi síða er opin til skrifta fyrir alla þá í árgangnum sem vilja tjá sig ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 17:09:53 / Larey

Gleðilegt sumar

Ég er komin í sumarfrí frá öllu bloggi en þið sem eruð með aðgang og lykilorð getið að sjálfsögðu sett eitthvað hérna inn ef þið hafið áhuga á því

Gleðilegt sumar og sjáumst kannski á ferðinni :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 19:38:21 / Larey

Árgangsmót 2006

Þessi helgi var að mínu mati alveg frábærlega skemmtileg. Það var svo gaman að hitta ykkur öll :lol: Vonandi komast þeir sem ekki komu núna, næst. En fyrir okkur til upprifjunar og fyrir aðra sem vilja vita, þá ætla ég að segja stuttlega frá helginni...

Á föstudagskvöldinu hittumst við heima hjá Kötu Freys, við skoðuðum myndaalbúm, spjölluðum og hlógum saman. Hápunkturinn var þegar Hrólfur dró upp spólu sem var upptaka af 6. bekkjarskemmtuninni okkar og rúsínan í pylsuendanum var að hárið var einnig á þessari spólu. Það var mikið hlegið og mikið roðnað þegar spólan rúllaði í gegn. Gugga A og Valdís að syngja Línu Langsokk lagið, Anna L Jón Spæjó, Sindri og Doddi í kjól, dansatriði, Anna Rós fegurðardrottning og margt annað skemmtilegt. Eftir partýið hjá Kötu fóru flestir í bæinn á djammið, ég fór því miður ekki með þangað en frétti að það hefði verið rosa stuð. Una og Leó eru best til frásagnar um það ;)

Á laugardeginum hittumst við og skoðuðum skólana, barnaskólinn er mikið breyttur en gagginn en nánast eins og þegar við vorum þarna. Einhver flensa herjaði á hópinn þannig að það var ákveðið að skella sér á pizza 67 í smá snarl (sumir fengu sér afréttara) Eftir matinn var heldur betur komið stuð í mannskapinn og okkur var skipt upp í fjögur lið. Valdís var með leik/keppni sem fólst í ákveðnum verkefnum sem við áttum að leysa og það má með sanni segja að við lífguðum aðeins upp á miðbæinn í þennan klukkutíma sem leikurinn tók. Hluti af leiknum var að semja ljóð, sem átti að vera óður til bernskunnar á Sigló. Þau eru hér til vinstri í aðalvalmyndinni.

Um kvöldið hittumst við í Suðurgötu 10 og þar var borðað saman, drukkið, sprellað og hlegið, já og dansað :lol: 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 18:55:58 / Larey

....

Ég er alveg að fara að nenna að blogga um atburði helgarinnar :) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 12:46:39 / Larey

22 dagar...

Í dag eru 22 dagar þangað til að við hittumst. 19 eru búnir að skrá sig og við verðum 28 í matnum á laugardagskvöldið. Ég er að reyna að redda mér frí eftir hádegi í vinnunni á föstudeginum svo ég nái nú að vera komin heim til Kötu tímanlega :D

Nú er tímabært að byrja að gramsa í kollinum á sér eftir skemmtilegum minningum og sömuleiðis má fara að leita af myndum frá því við vorum í skóla.

Þessir eru búnir að skrá sig: :D

Lárey + 1

Hrólfur +1

Una Dögg

Valdís +1

Sigrún

Guðlaug Þ +1

Leó

Anna Rós +1

Víðir V

Perla F +1

Jónsi

Ási Tona +1

Katrín F +1

Rut

Anna Louise

Bjarki +1

Berglind

Doddi

Grétar

(sigþór?)

 

 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 16:34:04 / Larey

Bréfið...

Kæru bekkjarfélagar

 

Við ætlum að hittast á Siglufirði helgina 2. – 4. júní sem er Hvítasunnuhelgin. Það er okkar einlæga von að sem flestir komi á heimaslóðir og rifji upp gamla og góða tíma.

 

Dagskráin hljóðar svona:

 

Föstudagskvöld:

Klukkan 21 ætlum við að hittast án maka heima hjá Kötu Freys (suðurgata 75), þar verður smá sprell til að byrja með og svo setjumst við niður í spjall og rifjum upp gamlar minningar með því að skoða ljósmyndir og hlusta á vel valda tónlist. Það væri frábært ef sem flestir kæmu með myndaalbúmin sín með sér

 

Laugardagur:

Klukkan 13 hittumst við fyrir framan Barnaskólann og förum saman inn að skoða hann undir leiðsögn Unu Daggar, einnig ætlum við að skoða Gagnfræðiskólann. Þegar það er búið og ef veður er gott þá ætlum við að fara fram að Hóli í fótbolta og í einhverja skemmtilega leiki með krökkunum okkar.

 

Kl 19:30 Borðum við saman í húsi Leikfélagsins (Suðurgata 10) mat sem við fáum sendan frá Allanum. Makar hjartanlega velkomnir. Þar ætlum við að skemmta okkur saman og djamma eins og við séum 19 J 

 

Kostnaður er í kringum 4000 á mann sem yrði bara borgað á laugardeginum.

 

Vinsamlegast staðfestið komu ykkar fyrir 3. maí í síma 8626199 eða sendið tölvupóst á larey@simnet.is

 

Margir komu að skipulagningu þessa bekkjarmóts og það sýnir bara hversu frábær bekkur við vorum J

 

 

 

 

 

Nefndin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 12:19:00 / Larey

FUNDUR!!!

Áríðandi fundur vegna bekkjarmótsins verður haldinn heima hjá mér, mánudagskvöld klukkan 20. Anna Rós, Leó, Gulla og Hrólfur endilega látið vita hvort þið komist. Aðrir úr árgangnum sem hafa áhuga á að koma eru hjartanlega velkomin :o)

Endilega sendið mér sms eða tölvupóst um það hvort þið komst eða ekki (larey@simnet.is 8626199)

 Kveðja, Lárey


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti